SKÁLDSAGA

Morgunn lífsins

Nafn Kristmanns Guðmundssonar (1901–1983) var á hvers manns vörum í Noregi kringum 1930 þar sem fyrstu skáldsögur hans birtust. Þær voru þýddar á meira en þrjátíu tungumál á 4. áratug síðustu aldar og víða gefnar út aftur og aftur. En á Íslandi mætti höfundurinn snemma miklum andbyr.

Nú gefst nýrri kynslóð tækifæri til að lesa eitt af bestu verkum Kristmanns Guðmundssonar, Morgun lífsins, sem á sér stað við hafnlausa strönd í sunnlensku samfélagi á seinni hluta 19. aldar. Á yfirborði virðist mannlífið kyrrstætt og staðnað en undiraldan er ógnvænleg.

Frásagnargleði og innsæi Kristmanns í mannlegan vanmátt og breyskleika hrífur lesandann með sér inn í straum örlaga og ásta – en hatrið, ,,hin þyngsta byrði lífsins,'' bíður álengdar glottandi.


HÖFUNDUR:
Kristmann Guðmundsson
ÚTGEFIÐ:
2017
BLAÐSÍÐUR:
bls. 248

AÐrar bÆkur
SEM ER VERT AÐ SKOÐA :